Við eigum litla stelpu sem við reynum vitanlega að gefa hollan og góðan mat, og primal matarræðið er ekkert nema hollt og gott. En hvernig fer þetta saman?
Emma litla er rúmlega 9 mánaða núna, og hún er farinn að borða mjög fjölbreyttan mat. Hún borðar mikið af grænmeti og ávöxtum, er farin að borða fisk, kjúkling og nautakjöt. Allt er þetta eitthvað sem fellur undir primal matarræðið. Hún drekkur stoðmjólk eins og mörg önnur börn, en það er varla hægt að ætlast til að hún sé að sleppa öllum mjólkurvörum eins og ströngustu lög segja til um, enda var mjög langur tími þar sem hún fékk bara ekkert nema mjólk að drekka.
Emma er svakalega dugleg að borða allt sem maukað er fyrir hana. Við reynum að gufusjóða allt og reynum að hafa þetta svolítið fjölbreytt, en það er stundum sem það er bara varla hægt. Þá er bara hægt að reyna að hafa matinn góðan og hollan, og vona að hún fyrirgefi einsleitnina.
Emma borðar líka stundum brauð, og það er sérstakt speltbrauð sem mamma hennar bakar fyrir hana. Á það fær hún oftast helling af smjöri eða kindakæfu þegar svoleiðis er til. Ekkert nema gott um það að segja.
Emma fær líka graut, en hún fær hafragraut og spelt graut tvisvar á dag, kvölds og morgna. Það er oft talað um hversu mikilvægur þessir grautur er fyrir börnin, auk þess sem mikilvægt er að hún borði vel á kvöldin til að sofa sem lengst yfir nóttina. Emma hefur reyndar verið að vakna rúmlega hálf 7 á morgnanna, sem eru svona í snemmsta lagi fyrir foreldrana, en þannig er það bara.
Það eru margar ákvarðanir sem þarf að taka síðar, en margt hefur þegar verið mótað. Við ætlum til að mynda ekki að gefa Emmu skyr, enda er það fitusnautt og ekki endilega það sem hún þarf fyrst og fremst. Emma þarf fitu, bara holla og góða fitu, og það er það sem primal matarræðið snýst um.
Ég veit að þegar Emma fer til dagmömmu og síðan á leikskóla er erfitt að reyna að halda einhverjum kröfum um primal matarræði þar. Það eins sem hægt er að gera er að reyna að hafa allt í góðu heima fyrir. Það er sumt sem ekki er hægt að hafa neina stjórn á. Innan primal stefnunnar er notast við 80/20 hlutfallið, sem sagt að þú stefnir að því að ná 100% árangri í matarræðinu, en þótt þú náir bara 80%, þá er það ekkert dauðadómur. Þetta er regla sem gildir fyrir alla, og þá líka fyrir litlar stelpur. 80/20 regluna á ég eftir að setja meira inn síðar.
Það er mikið til af pælingum um hvernig matarræði hefur áhrif á svefn og líðan ungbarna, og ég á örugglega eftir að skrifa meira um það síðar.
No comments:
Post a Comment