Apr 7, 2012

Primal matarræði og börn - Saga

Í framhaldi af póstinum frá í gær er hérna dæmisaga sem birtist á MarksDailyApple. MDA er undirstöðu síða fyrir alla sem hafa áhuga á primal málefnum, og á hverjum föstudegi er birt reynslusaga einhvers sem hefur náð góðum árangri með breyttu matarræði. Stundum eru það augljósir þættir eins og að léttast svakalega mikið, en stundum eru það hlutir sem sjást varla utan á fólki. Í þessu tilviki er um að ræða breytingu á litlum strák, Gabríel.


Gabríel fæddist frekar lítill, hann var magakveisubarn og hélt ekki miklu niðri. Hann var á brjósti til að byrja með en greindist síðan með bakflæði. Það gekk illa að koma mat ofan í drenginn og meltingartruflanir voru algengar. Þegar hann var þriggja ára byrjaði hann á leikskóla og var mikið veikur, fær oft kvef sem verður að bronkítis. Allir hafa heyrt að krakkar verði oft veikir á fyrstu árunum á leikskóla, en móðirin var ekki að sætta sig við hversu oft drengurinn var veikur.

Þau taka eftir að Gabríel verður sérstaklega veikur daginn eftir pizzukvöld, og þannig komast þau á slóðina og ákveða fyrst að taka út mjólkurvörur. Ástandið batnar nokkuð, en enn eru einhver einkenni eftir. Þá er ákveðið að taka út allt hveiti. Heilsan batnar enn en þó eru enn einhver einkenni. Í samráði við lækni er ákveðið að taka út hafra, soja og korn. Síðan eru liðin 2 og hálft ár og hefur Gabríel ekki fengið bronkítis síðan. Hann hefur fengið kvef en losnar alla jafna við það á þremur dögum.

Mamma Gabríels verður mjög ströng varðandi matarræðið í þeim tilgangi að halda drengum eins heilbrigðum og mögulegt er. Matarræði Gabríels felst helst í brúnum hrísgrjónum, kínóa, spelt brauði, grænmeti, ávöxtum og hnetum. Matarlystin er samt ekki mikil hjá stráknum, en hann er neyddur til að sitja við borðið þar til maturinn er kláraður. Hann kvartar samt mikið yfir magaverkjum og eru miklar truflanir á meltingunni. Einu skiptin sem Gabríel borðar almennilega er þegar farið er út í sunnudagsmorgunmat á diner, en þar borðar strákurinn stóran disk af eggjum, beikoni og hræru (hash browns) og vill alltaf fá meira beikon.

Þau taka eftir að þegar hann fær kjöt klárar hann það allt, og ákveða foreldrar hans að í leikskólanum skyldi hann fá nautakjöt, svínakjöt, kjúkling eða fisk allavega einu sinni á dag. Um leið sjást breytingar á orkunni, en það eru samt einhverjir magaverkir. Um það leyti er þeim bent á primal matarræðið af fjöldskyldumeðlim. Foreldarnir hafa séð jákvæðar breytingar á líðan Gabríels með hverri breytingu á matarræðinu, en skoða samt primal mál alvarlega því enn má betur gera. Einu kornvörurnar sem eru eftir eru brún hrísgrjón og kínóa, en það er nokkuð stór hluti af matarræðinu hjá drengnum.

Eftir að hafa staðið í miklum tilraunum í næstum tvo ár var allt korn tekið út í september 2011, en auk þess var bætt við eggjum, avakadó, hnetusmjöri (nut butters) og sætum kartöflum og magnið af kjöti aukið. Á fyrsta mánuðinum hættu magaverkirnir en Gabríel kvartaði hins vegar yfir verkjum í hnjám og öklum. Þegar það var skoðað kom í ljós að strákurinn var búin að vaxa um 2,5 cm á einum mánuði, verkirnir voru einfaldlega vaxtarverkir. Matarlystin tók svaka kipp. Í morgunmat borðar hann 3 steikt egg, salat, banana með hnetusmjöri og rúsínur. Ef hann er enn svangur fær hann sætar kartöflur á leiðinni í skólann. Í hádegismat fær hann kjöt og stóra skammta af grænmeti, ávöxtum, hnetum og sætum kartöflum. Kvöldmaturinn tekur mjög langan tíma vegna þess að drengurinn borðar endalaust, og virðist vera að reyna að bæta upp fyrir þann tíma sem hann gat ekki borðað nægju sína. Fimm mánuðum eftir að hafa skipt alveg um matarræði er hann búinn að stækka um 5 cm og auka líkamsþyngd sína um 28% Foreldrarnir taka eftir miklum breytngum á andlega þættinum líka, og styrkurinn hefur aukist svakalega.
Þessa sögu er hægt að lesa hér, en hér eru mjög margar aðrar sögur sem gaman er að lesa.

Þetta er vitanlega bara eitt dæmi, og ég á örugglega eftir að setja einhverjar fleiri inn. Það er samt vert að hugsa til þess að þegar einhverjir kvillar hrjá börnin, hvort sem er svefnvandamál eða önnur líkamleg vandamál, að skoða matarræðið. Það er svo stór hluti af lífi okkar, og eðlilegt að það hafi stór áhrif.


No comments:

Post a Comment