Margar síður á netinu bjóða upp á skráningu á æfingum sem maður tekur á hverjum degi, og langflestar eru ekki mjög spennandi. Ein síða er samt með nýja hugmynd sem virkjar keppnisskapið í mér. Síðan Fitocracy (ég ber þetta fram eins og democracy, nema með fito- ) býður mér að skrá mínar æfingar og fá fyrir það stig. Eftir ákveðið magn af stigum fer ég upp um level. Minnir mig á gamla nörda daga! (Nema kannski helst að því fleiri stig í þessum, þeim mun betra...)
Inn á þessari síðu er hægt að skrá sig í hópa, tengjast öðrum sem þú kannt að þekkja inn á síðunni og bera saman árangur. Enn sem komið er er þetta boðsvefur, en ég á nokkur boðskort sem ég er til í að deila með þeim sem vilja. Skelltu inn kommenti og ég sendi boðskort á þig!
Það er líka sniðugt að það eru alls kyns verkefni (quests) sem hægt er að taka þátt í, auk þess sem alls kyns viðurkenningar (achievements) sem fást stig fyrir. Hugmyndin er að á endanum verði maður nokkurn veginn háður því að vera í ræktinni. Það er verið að byggja á sömu hugmyndum og eru í til dæmis World of Warcraft eða einhverju þess háttar, og það er vitanlega bara frábært.
Ég velti samt fyrir mér hvort þetta væri kannski bara að fá inn ákveðinn hóp af fólki, og það væru þeir sem væru hvort sem er á fullu í ræktinni. Þeir sem þyrftu sérstaklega að koma sér af stað væru hugsanlega ekki þeir sem skráðu sig á svona síður...
Ég er til í boðskort! :)
ReplyDeleteBúinn að senda!
Delete