Það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt. Í sögunni um Gabríel var talað um hash browns, sem ég hafði aldrei smakkað, þannig að í morgun var ákveðið að prófa svoleiðis.
Þetta er ekki flókið, tók eina sæta kartöflu og notaði rifjárn á hana alla. Skellti öllu saman á pönnu og krydda með salt, pipar og paprikukryddi. Vitanlega hægt að krydda með hverju sem maður vill. Á mörgum síðum er talað um að hafa lauk með þessu, en það er ekki borðaður laukur á þessu heimili, þannig að honum er sleppt.
Ég setti alla kartöfluna á pönnuna, en það er líklega betra að setja minni skammta. Hafa þetta á pönnunni og reyna að forðast freistinguna að snúa þessu við. Láta þetta vera í nokkrar mínútur og leyfa þessu að brúnast. Kryddist eftir smekk. Snúa þessu við og elda á hinni hliðinni, og þá er þetta bara búið. Ég borðaði steikt egg með þessu, en það er auðvitað gott að borða beikon með þessu líka. Einhverjar síður leggja til að setja smáa bita af elduðu beikoni með í hræruna. Held að ég eigi eftir að prófa það einhvern tímann.
Aðrir möguleikar eru svo að skella þessu í muffinsform og klára þetta þannig inni í ofni. Þá er síðan hægt að kippa svona með sér í vinnuna eða geyma fram á næstu daga. Prófa það líklega næst.
No comments:
Post a Comment