Þetta er ekki flókin uppskrift:
Innihaldið er:
| Ef allt er gert rétt á þetta að líta svona út |
1 1/4 bolli möndluhveiti
1 matskeið kókoshveiti
1/4 teskeið Salt
1/4 matskeið matarsódi
1/4 bolli kókosolía
1/2 Banani (ca.1/4 bolli)
1 teskeið Vanilludropar
1 Egg
1/4 bolli 70% dökkt súkkulað
Við fórum svosem ekki alveg eftir uppskrift, skipti út möndluhveitinu fyrir spelt og setti umtalsvert meira af dökka súkkulaðinu. Kókosolían var hörð þegar ég setti hana í skálina en það þurfti smá hita til að fá hana til að mýkjast. Ég notaði þá bara hendurnar til að koma smá hita í þetta og þetta var á endanum flott. Svo notaði ég heilan banana, en hann var svosem ekki stór þannig að þetta kemur væntanlega út á slétt.
Aðferðin:
- Hita ofninn í 160 gráður.
- Hræra eggið í sérskál.
- Blanda saman öllum öðrum hráefnum utan súkkulaðsins.
- Hrærið egginu við allt saman þar til vel blandað og setjið svo súkkulaðið út í þetta líka og blandið vel.
- Setið teskeiðar af deiginu á bökunarpappír með ágætis millibili. Ég var með 17 stk, en ég notaði reyndar bara hendurnar til að móta þetta. Hefði líklega verið betra að nota teskeiðina.
- Bakist í rúmar 14 mínútur.
Niðurstaðan?
Þetta er nú ekkert að lúkka illa, og bragðið er bara nokkuð gott. Það var samt talað um af fyrstu tilraunadýrum að það mætti vera smá meiri sæta í þessu. Það væri kannski hægt að prófa að setja matskeið af hrásykri í næsta skammt til að prófa hvernig það er, en það er líka hægt að setja kókosmjöl.
Held að ég eigi eftir að gera svona aftur, alla vega næstu jólin.
No comments:
Post a Comment