May 1, 2012

Hollur og góður fiskréttur

Ég fann þessa hugmynd að þessum rétt einhvers staðar, en man ekkert lengur hvar það var. Það er líka í raun orðið aukaatriði vegna þess að hún breytist í hvert sinn sem ég geri hana.

Það sem þarf er fiskur, ég notaði ýsu en það er væntanlega hægt að nota þorsk líka. Bara nota það magn sem þið haldið að dugi. (Er ekki talað um 250gr. á fullorðna manneskju?)
Ég tók eina sæta kartöflu og skar svakalega smátt

Skar niður 4 stórar gulrætur. 
Þetta tvennt er svo steikt á pönnu


Svo bætti ég við papriku, sveppum og tómat.




















Þetta er allt látið malla í smá stund, kryddað eftir smekk. Ég notaði salt, pipar, papriku krydd, herbamare, þurrkaða basiliku og oregano.

Þegar þetta er farið að mýkjast er tómatmauk sett út og smá af vatni bætt við. Það er í lagi að þetta verði svolítið blautt, það á eftir að sjóða vel í þessu. Þarna er hægt að bæta við meira kryddi en annars bara að láta þetta malla í smá stund. Hér er líka rétta tækifærið að bæta við rjóma og osti fyrir þá sem það vilja. Svo er líka svakalega gott að bæta við ferskri basiliku ef hún er til.

Eldfast mót er tekið til og smurt með smjöri til að fiskurinn festist síður við. Fiskurinn er skorinn í smærri bita og lagður í botninn. Ef það er mikill fiskur er ekki verra að leggja bara eina umferð í botninn og geyma restina þar til sósan er komin yfir það, og svo setja afganginn af fiskinum þar ofan á. Þá er þetta eins konar "fisk-lasagna". 

Þegar sósan er orðið nokkuð þykk og bragðast vel er hún sett yfir fiskinn. Það er bara betra að hafa þetta svolítið djúsí. Svo er bara settur ostur yfir, ég notaði bæði rifinn ost og svo hreinan feta ost, og sett inn í ofn. Bakað á 180 gráðum í rúmar 20 mínútur. Ágætt að kveikja á grillinu seinustu 2-3 mínútur til að brúna ostinn. 

Þetta gengur alveg eitt en það er vitanlega hægt að hafa salat með þessu. Sýrður rjómi er nauðsynlegur! Við vorum 3 í mat og það var hellings afgangur. Reyndar var líka mikið af sósu eftir þannig að það fóru 2 box í ísskápinn, sósa og fiskur. Það er flott að hafa svona fyrir næstu daga. 

Nú vantar mig bara eitthvað þjált nafn á þennan rétt?

No comments:

Post a Comment