Önnur keppni sem ég er búinn að klára snérist um að borða bara 80% mettun, en ég minnst á hana þegar ég sagði fyrst frá þessari síðu. Þegar þeirri viku var lokið gat ég samviskusamlega sagt að ég hefði klára þessa keppni með sóma og fékk þess vegna þessa fínu viðurkenningu.
Það eru margar skemmtilegar keppnir í gangi og ég er alltaf að leita að einhverju skemmtilegu til að taka þátt í. Núna var ég að skrá mig í keppni sem heitir Mix it Up! og snýst um að prófa eitthvað nýtt á hverjum degi, hvort sem það er ný uppskrift, ný æfing, eða bara hvað sem er sem kemur mér út fyrir þægindarammann minn.
Það verður spennandi að sjá hvort þetta takist!
No comments:
Post a Comment