Jun 4, 2012

Regla númer 7: Leika sér

Regla dagsins snýst um að leika sér.

‘We don’t stop playing because we grow old; we grow old because we stop playing.’ ~George Bernard Shaw
Það eru ekki margir sem leika sér í dag. Að leika sér er fyrir börn. Við tökum kannski einn leik, en það er þá helst einn Angry Birds á meðan við erum á klósettinu. Fólk er sífellt til í að fórna því að leika sér til að reyna að halda í við hinn hraða lífsmáta sem er orðinn allt of algengur, jafnvel hér á Íslandi. Það er erfitt að gera fundarboð á leikstund.


Hljóta nú að vera einhver vísindi, er það ekki?

Mælt er með að reyna að taka sér tíma á hverjum degi til að leika sér algerlega óhindrað. Þetta er sérstaklega mikilvægt ef maður á börn og þess vegna um að gera að reyna að herma eftir þeim við leik þeirra. Það er ekki bara að það sé skemmtilegt að leika sér heldur losna líka endorfín inn í blóðið og hjálpar að hafa stjórn á andlega álaginu sem fylgir nútíma samfélagi. Gaurinn sem er helst að baki þessum fræðum talar mikið um að taka frisbee leiki, og sveimérþá ef ég á ekki eftir að taka einhverja slíka leiki í sumar.


Hvað felst í að leika sér?

Á öðrum stað fann ég svo lýsingu á hvernig við getum reynt að gera leik stærri hluta af lífi okkar. Hugmyndin þar er að það er ekki alltaf hægt að njóta þess sem maður er að gera, og þess vegna er um að gera að reyna að gera það leiðinlega aðeins skemmtilegra. Meðal þeirra hluta sem nefndir eru þarna eru að syngja á meðan húsið er hreinsað, ímynda sér að maður sé hluti af kvikmynd þegar maður mætir á fund, og að reyna að láta tölvupósta og bréf ríma og hugsanlega stuðla líka. Þetta eru bara litlir hlutir sem láta mann brosa, og það skiptir alveg hellings máli. Góð grunnregla er að reyna að hugsa hlutinu eins og barn myndi líta á þá. Þessi einstaki hæfileiki barna til að leika sér tímunum saman eldist af okkur, en það þýðir ekki að við getum ekki náð einhverju af honum til baka!


Ég veit að ég á eftir að reyna að leika mér mikið með litlu stelpunni minni og hlakkar líka til að kenna henni alls kyns nýja leiki, og hún á örugglega eftir að kenna mér alveg helling líka. 


Næsta regla getur verið erfið stóran hluta ársins hér á Íslandi, en hún snýst um að fá nægt sólarljós. 

No comments:

Post a Comment