Hugmyndina að baki primal líferninu, alla vega eins og ég fer eftir því, kemur frá Mark Sisson. Hann heldur úti MarksDailyApple.com, sem ég talaði um í gær. Primal lífernið byggir á hugmyndinni um að við eigum að lifa í samræmi við hvernig frummaðurinn lifði. Með því er ekki verið að segja að það eigi að sleppa öllum nútímaþægindum, heldur er þetta eins og svo margt helst til hliðsjónar.
Sisson setur fram 10 reglur í bók sinni The Primal Blueprint um hvernig eigi að lifa primal líferni. Þessar reglur eru:
1. Borða mikið af plöntum og dýrum.
2. Forðast eitraða hluti.
3. Hreyfa sig mikið á hægum hraða.
4. Lyfta þungum hlutum.
5. Spretta endrum og eins.
6. Fá nægan svefn.
7. Leika sér.
8. Fá nægt sólarljós.
9. Forðast heimskuleg mistök.
10. Nota heilann.
Alla þessa hluti er hægt að skrifa mjög mikið um, og á ég eftir að setja eitthvað meira um hvern og einn þátt, lýsingu á hvað er átt við og hvernig þetta fer saman við íslenskar aðstæður. Sumt er erfiðara en annað, eins og til dæmis að fá nægt sólarljós, þótt sumir myndi kannski segja að það að forðast heimskuleg mistök sé óyfirstíganlegt verkefni...
No comments:
Post a Comment