Apr 27, 2012

Hvernig á að mistakast?

Það að ná árangri, alveg sama í hverju það er, snýst um að halda í góða vana og losa við þá slæmu. Ég rakst á lista yfir nokkra hluti sem margir gera eða hugsa sem veldur því að erfitt getur verið að temja sér góðar venjur og láta af þeim slæmu. Þarna eru alla vega nokkrir puntkar sem ég hef gerst sekur um.


1. Að reyna að temja sér fleiri en eina góða venju í einu. Það er hugsanlega nokkrir hlutir sem okkur langar að breyta í hegðun okkar og freistumst við kannski til að reyna að breyta þeim öllum í einu. Það dreifir athygli okkar og veldur því að það er erfitt að kljást við hvert atriði fyrir sig, og á endanum bregðast hugsanlega allar tilraunir. 


2. Að reyna við meira en við ráðum við. Stundum er það þannig að markmiðin sem við setjum okkur eru allt of hátt sett. Þannig er til dæmis reynt að hlaupa 5 kílómetrana áður en reynt er við 1 kílómeter, og allt vex okkur í augum og krefst mikillar orku. Annað dæmi er einmitt þegar fólk ákveður að taka sig á í matarræðinu og steypir öllu á hvolf í stað þessu að breyta einum hlut í einu. Þetta er mjög algeng leið til að mistakast.


3. Að ætla að temja sér eitthvað sem maður hefur óbeit á. Viðhorfið er stundum þannig að góðar venjur eigi að gera þeirra eigin vegna, ekki vegna þess að þú hefur gagn og gaman af þeim. Þegar mönnum tekst svo að temja sér einhvern góðan sið án þess að vilja það í raun telst það mun stærra skref. Viðhorfið virðist vera að vegna þess að þetta virkar svo sjaldan þá hljóti þetta að vera góð aðferð.


4. Að halda markmiðum sínum leyndum. Margir kjósa að þegja yfir þeim markmiðum sem þeir setja sér vegna þess að ef þeim mistekst verði það svo vandræðalegt. En þeir sem svona hugsa eru strax farnir að reikna með því að þeim muni mistakast, sem er fyrirtaks leið til að mistakast.


5. Að fara af stað af öllum krafti. Einhverjir eru þannig að ef þeir ákveða eitthvað þá er bara hlaupið strax af stað. Stórar breytingar eru gerðar að litlum og ekki er reiknað með neinum hindrunum eða að það verði nauðsynlegt að hafa stuðning. Það að byrja var ekkert mál, og þannig verður það heldur ekkert mál að hætta.


6. Ekki hugsa um hvernig öðrum hefur tekist að klára sama verkefni. Hvers vegna að vera að eltast við reynslusögur frá öðrum, þú veist betur en þeir! Þú getur leyst þetta vandamál betur en nokkur annar! Raunin er vitanlega að mikil hvatning er að vita hvernig öðrum hefur farnast, bæði til að vita að leiðin sé greið en einnig til að vita hvað þarf að forðast. 


7. Ekki hvetja sjálfan þig áfram. Sumir ætla bara að taka verkefnin á aganum án þess að hvetja sjálfa sig áfram. Hvernig myndum við hjálpa vinum okkar í sínum verkefnum? Við myndum hvetja þá áfram á jákvæðan hátt frekar en að reyna að beita þá einhverri hörku. Hvers vegna þá ekki að beita sömu aðferðum á okkur sjálf?


8. Að veita sér mörg tækifæri til að mistakast. Sumir virðast halda að besta leiðin til að standast freistingar sé að hafa þær fyrir framan sig allan tíman, hafa skápa fulla af því sem ekki á að borða og fara á veitingastaði sem bera 99% fram óhollan mat. Vegna þess að þú hefur viljastyrkinn til að standast þetta allt saman. Að berjast endalaust við freistingar er erfitt og öll hjálp ætti að vera vel þegin. Hættum að gera hlutina erfiðari en þeir þurfa að vera.

No comments:

Post a Comment