Apr 25, 2012

Regla nr. 2: Forðast eitraða hluti

Þótt að það sé vissulega minni líkur á að við hittum á eitraðar plöntur á rölti okkar um Hljómskálagarðinn eru samt sem áður til mjög mikið af etiruðum hlutum. Núna eru þeir bara í meira magni manngerðir.

Hvað ætti að forðast?
Það helsta sem ætti að forðast er sykur og gos, breyttar fitur og mikið unninn, steiktur, og rotvarinn matur. Það ætti að vera augljóst. Það sem er kannski ekki jafn augljóst eru hlutir eins og unnar kornvörur. Með því er átt við það sem unnið er úr hveiti og mjöli, svosem brauð, pasta, kex, snakk, bakarísvörur, hrísgrjön, korn, morgunkorn og fleira í þessum dúr. Hinn Heilagi Sannleikur hefur einmitt sagt okkur að þessir hlutir, alla vega hrísgrjón og grófar kornvörur, séu mjög hollar og ættu jafnvel að vera stór hluti af matarræði okkar. Það er hins vegar ekki raunin.

Í þessari upptalningu er að finna margt sem hefur verið hluti af matarræði okkar í langan tíma, jafnvel einhver þúsund ár. Þrátt fyrir það eru meltingarfæri okkar ekki undirbúin að vinna úr þessum vörum. Þegar þessar tegundir af mat koma inn í kerfin eykst blóðsykurinn mjög mikið, enda munu bæði flókin og einföld kolvetni breytast í blóðsykur (glúkósa) þegar það kemur inn í kerfið. Við það fer lifrin að seyta meira insúlíni til að koma til móts við glúkósann. Insúlín eru nauðsynlegt fyrir líkamann, en þegar kemur mikið magn, sem í raun rekur allan glúkósann á brott, getur komið sykurfall. Þá kemur mikil andleg og líkamleg þreyta yfir mann og mikil löngun kemur í fljót kolvetni (vegna þess að heilinn þarf glúkósa til að keyra áfram.) Svona myndast vítahringur sem erfitt getur verið að brjótast útúr.

Sykurfall
Hlutverk insúlíns í blóðinu er að bera mikilvæg efni með sér um líkamann, en þegar of mikið magn er af insúlíni í blóðrásinni kemur það í veg fyrir að varageymslur af fitu séu notaðar í brennslu. Móthormón insúlíns er glucagon, sem sér um að fara í þessar varageymslur og sækja fitu til að brenna. Þegar mikð er af insúlíni er lítið af glucagoni. Það gerir það að verkum að það er lítil sem engin brennsla í gangi, og líkaminn öskrar á eitthvað sætt til að brenna sem allra fyrst.

Hvað þýðir þetta svo?
Ekki nóg með að þetta ójafnvægi hafi slæm áhrif á mögulegt þyngdartap, heldur getur þetta ástand yfir ár og áratugi einnig leitt til lífstílssjúkdóma eins og sykursýki, ofþyngdar eða hjartasjúkdóma.

Ég horfði á mynd um daginn sem heitir Fat Head. Hún er ekkert sérstaklega fansí, en hún er áhugaverð, og er í raun gerð sem andsvar við SuperSizeMe sem Morgan Spurlock gerði fyrir nokkrum árum um hvernig er að lifa á McDonalds í mánuð. Þessi mynd sýndi á mjög myndrænan hátt hvernig það virkar í líkamanum þegar insúlín kemur inn í kerfið.Ég veit svo sem ekki hvort þessi mynd sé aðgengileg í myndbandaleigum, en það er hægt að bjarga sér um hana ef viljinn er fyrir hendi. 

Næsta regla snýst um að hreyfa sig reglulega, en á hægum hraða.

No comments:

Post a Comment