Apr 23, 2012

Hvers vegna er leyfilegt að svindla?

Gaman að sjá svona mikið af nýjum gestum. Endilega að líta oft inn, ég reyni að setja inn áhugavert efni nokkrum sinnum í viku.

Efni dagsins: Leyfi til að svindla
Einhvern tímann hef ég talað um 80/20 hlutfallið í primal stefnunni. Það er hægt að líta á þetta hlutfall á marga vegu; Til dæmis er hægt að líta á það sem leyfi til að svindla, það er hægt að líta þannig á að það eigi að stefna að 100% fylgni við matarræðið, en ef það er bara 80%, þá er það líka allt í lagi og bara vel að verki staðið.

En hvað merkir það eiginlega?
Á öðrum stöðum, til dæmis í viðskiptum, er 80/20 hlutfallið til dæmis notað um að 80% af  veseni komi vegna 20% af viðskiptavinum, og hugsanlega er það svipað hér. Kannski hefur 20% af vali okkar áhrif á öll hin 80% af því sem við leggjum á okkur? Kannski er ástæða þess að það næst bara 80% árangur einmitt þessi 20% sem ég leyfi mér. 

En hvers vegna þetta 80/20 hlutfall?
Að mínu mati tengist það öðrum mikilvægum þætti, og það er að hugsa um það sem látið er ofan í sig. Góð og gild regla er að borða hægt, tyggja oft og lengi, og njóta matarins. Þannig gerir þú þér betur grein fyrir hvað þú ert að láta ofan í þig, en borðar um leið minna vegna þess að maginn nær að segja heilanum að þú sért orðinn saddur áður en þú nærð að troða meira í þig. Það er þessi hugmynd um að hugsa um matinn sinn sem ég held að hafi mikið að segja.

Í nýlegri reynslusögu af MarksDailyApple.com segir bjórdrykkjumaður frá sinni reynslu. Hann hafði gaman af því að drekka bjór, ferðast víða um heim að smakka á góðum bjór og sinnti þessu áhugamáli sínu af ástríðu. Hann drakk bjórinn í raun án þess að hugsa. Eftir að hann uppgötvaði primal stefnuna var bjórinn orðinn að svindlinu hans, féll innan þessara leyfilegu 20% sem hann mátti leyfa sér. Hann náði góðum árangri, en það var alltaf eitthvað smá eftir, það var hægt að gera betur..Það vantaði alltaf nokkur prósent...

Þannig breytist hugsanargangurinn. Þótt að svindl sé leyfilegt, þá gerir maður sér grein fyrir að það er hugsanlega þetta svindl sem heldur aftur af mér og kemur í veg fyrir að ég nái mínum besta árangri.

(Hægt að fara í heimspekilega umræðu um að ef eitthvað er leyfilegt, þá er það eiginlega ekki að svindla, en við skulum ekki fara út í það...)

No comments:

Post a Comment