Slimkicker er síða sem ég hef nýlega fundið. Þetta er svpað og Fitocracy síðan sem ég benti á um daginn, nema þessi er með meiri áherslu á að skrá hvað maður borðar. Þarna er þá líka hægt að tengjast kunningum, skrá sig í hópa og taka þátt í keppnum. Það lítur út fyrir að margar síður ætli að reyna að fara social-media leiðina til að ná árangri. Stig eru gefin fyrir góðan árangur og fyrir að taka þátt í keppnum.
Ég hef prófað aðrar svona síður og einhver forrit í símann, en það virðist vera þægilegra að setja inn á þessa síðu. Ég á samt ekki von á að ég muni vera allt of duglegur að setja inn á þessa síðu, en maður veit aldrei.
No comments:
Post a Comment