Hugmyndin er að til séu þeir sem framkvæma(Doer), þeir sem dreyma (Dreamer) og síðan þeir sem eru einhvers konar blanda af þessu tvennu. Ég skal líka viðurkenna að þegar talað er um að einhver sé doer dettur mér í hug atriði úr Næturvaktinni þegar verið er að moka skurð í Svíþjóð.
Þrátt fyrir það hljómaði þetta vel fyrir mér.
Draumórafólkið
Draumórafólkið er endalaust að detta í hug nýjar og áhugaverðar hugmyndir sem myndu hugsanlega skila miklu ef þær yrðu einhvern tímann framkvæmdar. Vandi draumóramannsins er að það skortir þennan framkvæmdarþátt, og oft er nauðsynlegt að hafa félaga sem sér um framkvæmdarhlutann í verkefnum til að nokkuð gerist. Ég held að mörg okkar kannist við fólk sem er alltaf að fá góðar hugmyndir, segist jafnvel hafa dottið í hug einhver fræg uppfinning áður en hún varð fræg, en þessir aðilar virðast ekki endilega gera neitt með allar þessar hugmyndir sínar.Framkvæmdaraðilinn
Framkvæmdaraðilinn er einmitt það sem nafnið gefur til kynna, meira í framkvæmdum á hlutum frekar en að finna nýjar lausnir. Þetta eru líka aðilar sem við könnumst öll við, og þessir aðilar eru bráðnauðsynlegir í öllum verkefnum. Þetta er kannski aðilinn sem kinnkar bara kolli á fundum þar sem hlutir eru ákveðnir, en getur samt verið ákveðnastur um að koma ákvörðunum í gegn. Framkvæmdaraðilinn getur einnig verið mjög ákveðinn í að ýta við öðrum og annarra hugmyndum, án þess að leggja nokkuð til í hugmyndavinnunni sjálfri.Bil beggja flokka
Það sést að þetta eru í raun báðir góðir kostir, en þó er besti kosturinn augljóslega einhvers konar sambland af báðum þessum manngerðum. Þeir eru líka til og ég kannast sjálfur við nokkra sem falla í þennan flokk. Þetta eru þá þeir sem láta sér detta í hug áhugaverðar og skemmtilegar lausnir eða nýjungar og hafa kraft í sér til að framkvæma þær líka. Ég held samt að þar sem þetta er millibil tveggja öfga geti þetta verið hófsamara en hjá framkvæmdaraðilanum eða draumóramanninum. Það sést að sá sem bæði finnur lausnir og nýjungar af fullum kraft en framkvæmir líka af fullum krafti væri eins konar ofurmenni, og þar sem það er ekki margir slíkir verður að reikna með að þeir séu í það minnsta sjalfgæfari.Er hægt að hoppa á milli flokka?
Það er væntanlega hægt að þjálfa með sér sterkari framkvæmdarhvöt, og það er hugsanlega hægt að rækta með sér þann eiginleika að finna nýjar lausnir (skrifa niður allar hugmyndir, notast við þekktar hugarflugsæfingar og svo framvegis) en það þarf að hafa í huga að hver flokkur fyrir sig hefur mikla styrkleika, rétt eins og allir. Vandinn snýst oftast bara um að finna eigin styrkleika og nýta sér þá. Hugsanlega er þinn styrkleiki best nýttur í samvinnu við annan aðila. Um leið og það er ljóst er hægt að halda áfram og vinna að einhverju stórkostlegu. Bæði Doers og Dreamers eru nauðsynlegir í öll teymi.Bókin heitir Making Ideas Happen eftir Scott Belsky. Mæli alveg með henni fyrir hvern sem hefur áhuga á þessum málum.
No comments:
Post a Comment