May 22, 2012

Regla númer 5: Spretta endrum og eins

Primal regla númer fimm snýst um að taka spretti endrum og eins.


Þegar fólk sér þessa reglu eru kannski mörgum sem lýst ekkert á þetta. Það eru ekkert allir sem eru tilbúnir að fara að spretta neitt. Raunin er þó sú að það er ekki beint ætlast til þess að fólk sé að hlaupa á fullum krafti í einhvern tíma, heldur frekar að fólk reyni á kerfið í smástund, sama hvernig það er gert. Ein leið til að taka á því í stuttan tíma er til dæmis að hlaupa á milli ljósastaura og ganga síðan á milli næstu tveggja, eða að synda eina ferð á fullum krafti og taka síðan rólegri næstu tvær ferðir. Það eina sem skiptir máli er að taka stutt á því, og leyfa síðan kerfinu að róa sig aðeins áður en það er tekið á því að nýju. Hérna held ég að bardagaíþróttir geti alveg gengið þar sem þær eru átök í stuttan tíma, kannski 10-15 sekúndur, og svo er smá pása. (Ég geri mér grein fyrir að það á ekki við um allar bardagaíþróttir, en það eru samt sumar þar sem þetta á við.)

Hvernig nýttist þetta frummanninum?

Frummaðurinn, sá sem primal lífsmátinn byggir á, var ekkert að skokka létt í hringi í langan tíma sér til skemmtunar. Hann var einmitt að taka spretti í ýmiskonar tilgangi, hvort sem var til að hlaupa á eftir bráð sinni eða reyna að koma í veg fyrir að verða sjálfur að bráð einhvers rándýrsins. Milli þess slakaði hann bara á og naut lífsins.

Hvernig er hægt að gera þetta?

Það er hægt að spretta úti en það er líka hægt að gera það á hlaupabrettunum í ræktinni. Ég hef til dæmis verið frekar lélegur í að hlaupa úti þótt það sé nú stefnan þegar hlýnar aðeins. Það sem ég geri þá er fyrst vitanlega að hita aðeins upp. Svo set ég brettið á nokkuð mikinn hraða, kannski 16 í WorldClass tölum, og hleyp 100 metra þannig. Ég hoppa af og bíð á meðan brettið fer aðra 100 metra og hoppa svo aftur á. Eftir 300 metra hækkaði ég hraðann í 17 og hleyp aðra 300 metra svona. Að lokum er hækkað í 18 og 400 metrar teknir á sama máta. Hérna var samt nauðsynlegt fyrir mig að taka aðeins lengri pásur á milli, en það er vitanlega bara gott og blessað. Eftir þetta er kannski teknar aukaæfingar (magaæfingar eða eitthvað þess háttar), teygt og kerfið róað aðeins. Allt klárað á undir 30 mínútum, sem er mjög góður tími.

En hvers vegna að spretta?

Að taka spretti endrum og eins stuðlar að aukinn orku og hjálpar til við að ná árangri í öðrum íþróttum, en hægir einnig á öldrum með að ýta undir losun á testósteróni og vaxtarhormónum, en þeir geta líka verið góðir fyrir konur.
Það er því mælt með að spretta einu sinni í viku,  oftar ef fólk er sérstaklega orkumikið. Þessa spretti er hægt að framkvæma hvernig sem fólki hentar.

Roadrunner

Ég efast ekki um árangurinn af sprettunum, en það eru samt mjög mismunandi áhrifin milli spretta og langhlaups. Í mínu tilviki í það minnsta var ég miklu þreyttari eftir langhlaupið en sprettina. Hugsanlega er það eðlilegt, en mér finnst betra að vera ekki dauðþreyttur eftir æfinguna. Það gerir mér auðveldara að hafa þetta sem hluta af lífsmáta frekar en einhverju svaka átaki. Þá hef ég nú verið að taka spretti í nokkurn tíma núna og finn ekki fyrir sömu eymslum í fótunum eins og ég fann þegar ég hef verið hvað mest að hlaupa langhlaupin.

Næsta regla snýst um nokkuð sem margir eiga kannski eftir með að fara eftir, þrátt fyrir góðan vilja. Hún snýst um að fá nægan svefn.

P.S. Aðalkeppnin á Fitocracy Slimkicker þessa vikuna er að taka mikið af plankaæfingum. Ég er búinn að vera að taka þetta núna í tvo data og sveimérþá ef ég er ekki farinn að finna fyrir þessu!

No comments:

Post a Comment