Einhvern sunnudaginn leit ég í ísskápinn minn og sá rauða pestóið sem var sett ofan á seinustu pizzu sem við gerðum og mér varð hugsað til hvað það væri nú gott að eiga eitthvað kex til að fá sér með þessu pestó. Þá mundi ég eftir uppskrift af primal kexi sem ég hafði séð fyrir löngu síðan og alltaf langað að prófa. Ég fann uppskriftina hér og sá að ég átti allt sem þurfti í hana, enda ekki mikið sem þarf. Ég ákvað þess vegna að skella í kex, og taka af því myndir.
Innihald:
Aðferðin:
Möndlurnar eru settar í matvinnsluvél og þær hakkaðar vel og vandlega. Reyndar var þetta eitthvað aðeins minna en 2 bollar af möndlum hjá mér, en það var ekki mikið stress yfir því.
Möndlurnar eru þá kurlaðar alveg niður í ekki neitt, og saltinu bætt við. Það átti sem sagt að vera dill, en mér leyst eiginlega ekkert á það. Ég setti þessi vegna rósmarín í staðinn, en það skipti í raun engu máli á endanum. Það finnst ekkert bragð af því. Það er þess vegna hægt að hafa eitthvað enn betra bragð, en setja þá bara aðeins meira af því.
Eggið er þeytt og bætt út í. Ólífuolíunni er bætt út í og þetta allt saman hrært vel og vandlega. Litli mixerinn minn átti í smá vandræðum með að blanda þessu öllu vel og vandlega saman, en það hafðist á endanum. Ég þurfti nokkrum sinnum að stoppa og blanda aðeins með skeið, og svo halda áfram að mixa.
Þegar allt er blandað skellti ég þessu á bökunarpappír. Þetta er frekar klístrað þannig að ég notaði aðra örk af bökunarpappír til að forma þetta, og endaði með að setja þetta í svona stangir. Þær skar ég svo niður í litlar sneiðar.
Fyrst skar ég bara og setti á pappír, en mér fannst það ekki alveg nógu fallegt þannig að ég fór að móta þær aðeins meir í höndunum áður en þær fór á pappírinn. Jújú, þá lúkkaði betur en það skiptir í raun engu þegar allt er talið. Þetta varð alveg slatti af kexi.
Ég muldi smá sjávarsalt yfir nokkur kex, svona til að prófa.
Þetta er svo skellt inn í ofn á 180gráðum í 10-12 mínútur.
Þegar kexin komu úr ofninum kraumaði í þeim. Ég reyndi að ná mynd af því en það tókst ekki nógu vel. Ég myndi halda að þetta væri góðan fitan í möndlunum að sjóða svolítið.
Svona leit sem sagt ómótað kex út.

Og svona lítur þetta út, komið í smákökuboxið sem ég fékk frá dóttur minni. Þetta var bara mjög gott með pestóinu sem ég átti inni í ísskáp, og ég held að ég eigi eftir að gera svona aftur seinna.






No comments:
Post a Comment