Regla númer 4 snýst um að lyfta þungum hlutum.
Eins og fram hefur komið í reglupistlum hingað til snýst þessi lífsspeki að mjög miklu leyti um jafnvægi, og það er einnig þannig þegar kemur að lyftingum. Þær lyftingarhugmyndir sem kenndar eru við primal snúast um eins náttúrulega hreyfingu og hægt er að hugsa sér innan nútíma líkamsræktar. Það er oft átt við æfingar sem taka á allan líkamann eða alla vega stóra vöðva hans. Til dæmis um þannig æfingar eru hnébeygjur, framstig, armbeygjur, upphífingar og fleira í þeim dúr. Þessar æfingar munu hjálpa okkur að mynda og halda vöðvamassa, auka brennslu og viðhalda lágri fituprósentu. Þá er líka hægt auka þéttleika beina, koma í veg fyrir meiðsli og halda jafnvægi á hormónum og blóðsykri.En hversu lengi var frummaðurinn í ræktinni?
Æfingar okkar ættu ekki að vara allt of lengi, allt undir klukkustund, en helst ekkert mikið lengur en 10-30 mínútur. Þetta ættu að vera kraftmiklar æfingar sem eru framkvæmdar nokkuð oft en þó ekki oftar en okkar eigin líðan segir okkur. Þetta mun samkvæmt primal hugmyndum skila mun betri árangri en að vera í ræktinni allt of oft í allt og langan tíma. Þess háttar ofæfing er í raun oft ávísun á ofþreytu og ójafnvægi.Það er hægt að ná ótrúlega góðum árangri með allt niður í tveimur æfingum á viku sem eru ekki lengri en 25 mínútur. Þetta magn minnkar líkurnar á ofþjálfun og ofreynslu.
Og hvernig lítur svona æfingarprógram út?
Nú hef ég verið að fara eftir æfingarprógrammi sem byggir á þessum hugmyndum í nokkrar vikur núna með góðum árangri. Það snýst um eins og segir að ofan um tvo æfingardaga. Fyrri daginn er tekin hnébeygja og bekkpressa, ekki meira en 5 lotur, í mest 5 skipti upp. Svo er þungur róður með handlóðum og að lokum upphýfingar. Dagur 2 snýst um réttstöðu og axlarpressu, með upphýfingum og dips og svo er endað á kálfapressu. Þetta er allt og sumt. Ef mér lýst þannig á reyni ég kannski að kíkja í ræktina og taka nokkra spretti eins og næsta regla segir til um (þótt það sé vitanlega lang best að taka þá úti) en annars er ég ekkert að stressa mig á því þótt ég komist ekki í ræktina. Á stuttum tíma hef ég náð góðum árangri, en það sem mestu skiptir er að mér líður vel. Ég er ekki í keppni við neinn, heldur snýst þetta bara um að líða vel og vera heilbrigður.Næsta regla snýst eins og áður segir um að taka spretti endrum og eins.

No comments:
Post a Comment