Um hvað snýst þetta?
Það að sofa nógu mikið er eitthvað sem margir eru til í að fórna, og stundum er það sagt sem eins konar hetjudáð ef svefni er sleppt. Ég hef sjálfur örugglega látið einhverja slíka vitleysu út úr mér. Raunin er vitanlega sú að við þurfum svefn til að geta haldið okkur vakandi og notið lífsins. Það að geta illa haldið augunum opnum yfir daginn vegna takmarkaðs svefns, og missa þess vegna að öllu því merkilega sem gerist eru ekki hagstæð skipti.Hvað er það sem skerðir svefninn?
Ýmiskonar stafræn afþreying, ýmis illmeltanleg efni (til dæmis sykur, áfengi og ýmis lyf) og svo allar manngerðar truflanir eins og vekjaraklukkur sem gera það að verkum að svefn okkar er ekki mjög náttúrulegur lengur. Það er nauðsynlegt fyrir okkur að reyna að hafa ró og næði þar sem færslan yfir í svefntímann er mjúk (ekki allt á fullu þar til loks á að fara að sofa) en þannig er hægt að sofa nægilega mikið til að jafnvel vakna náttúrulega án vekjaraklukkunnar fersk og endurnærð. Þetta getur kannski verið erfitt hér á landi stærstan hluta ársins þegar dimmt er mestan hluta dagsins.
Hver er ágóðinn?
Nægur svefn hjálpar ónæmiskerfinu að vinna eins og best verður og stuðlar að því að tiltekin hormón sleppa, en þessi hormón auka heila og kirtlavirkni. Það er þess vegna mælt með að farið sé að sofa á sama tíma á hverju kvöldi eftir að slakað hefur verið á í nokkurn tíma. Með afslöppun er átt við að sleppa sjónvarpinu, ekki taka erfiðar æfingar, forðast stórar máltíðir eða annað áreiti. Það er þá vitanlega breytilegt hversu mikinn svefn við þurfum og það munu koma tímar þar sem við þurfum að fórna góðum svefni vegna annarra ytri aðstæðna. Þá er heldur ekkert að því að taka smá lúr seinni partinn ef þreyta kemur yfir mann. Heimurinn á ekkert eftir að farast þótt þú lokir augunum í smá stund.
Næstu regla getur einnig verið erfitt að skilgreina og mæla, en hún snýst um að leika sér.

Svefn er vanmetinn! Maður fúnkerar svo mikið betur eftir góðan svefn, en ég fúnkera þó ekkert betur eftir langan svefn ef hann er ekki góður.
ReplyDeleteÉg á félaga sem hefur stúderað paleo og allt þetta í langan tíma, og hann keypti sér vekjaragluggu sem kemur alltaf smá og smá meira ljós af frá þeim tíma sem hún er stillt á, svona rétt einsog sólin sé að koma upp, og svo er hægt að velja um lækjarnið eða fuglasöng til að vakna við. Það er auðvitað mun skárra en einhver hávær hringing úr símanum!
Jamm, ég hef verið að skoða svoleiðis vekjaraklukku. Á endanum fann ég mér bara vekjaraklukku í símanum sem kemur með voðalega mjúka tóna og rólega lýsingu þar til ég slekk. Það er reyndar fyrsta hryna. Ef ég vakna ekki við þetta koma lætin.
DeleteSvo er ég reyndar kominn með mjög náttúrulega vekjaraklukku sem vekur mig alltaf á svipuðum tíma með yndælis emji. Það er varla til betri vekjaraklukkan en það.